Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1223

Haldinn í ráðhúsi,
02.06.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 1. varamaður,
Gauti Árnason varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jóna Benný Kristjánsdóttir, Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Varaformaður leggur til breytingu á dagskrá fundarins þannig að aðeins verði tekin fyrir mál varðandi útgáfu rekstrar- og gistileyfa, opnun tilboða í Sindrabæ og Hofgarð og mál sem þegar hefur verið samþykkt í tölvupósti.

Gauti Árnason og Ásgerður Kristín Gylfadóttir samþykkja tillöguna.

Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir situr hjá og leggur fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúi K lista bendir á að núverandi bæjarstjórn og nefndir fari áfram með fullt umboð til ákvarðanatöku þar til ný bæjarstjórn hefur formlega tekið til starfa og skipað hefur verið í nefndir.

Næsti fundur nýs bæjarráðs er ekki fyrirhugaður fyrr en 16. júní og því munu mál tefjast um tvær vikur hið minnsta með tilheyrandi óvissu fyrir starfsemi sveitarfélagsins og aðra hlutaðeigandi. Mikilvægt er að tryggja samfellu í stjórnsýslu sveitarfélagsins og að mál sem þola ekki bið fái eðlilega málsmeðferð með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202604062 - Útboð/Verðkönnun Endurbætur Hofgarður
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna leggur fram fundargerð vegna opnunar tilboðs í eldhús í Hofgarði og upplýsir um stöðu málsins.

Ekkert tilboð barst innan auglýsts frests.


Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna er falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Björn Þór Imsland, umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
2. 202605801 - Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingastaður í flokki II - A Veitingahús - Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2- F2180639
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingastaður í flokki II - A Veitingahús - Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2.



Bæjarráð veitir jákvæða umsögn sbr. umsögn byggingafulltrúa og slökkviliðs.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
3. 202605802 - Umsögn um útgáfu gistileyfis- Gististaður í flokki II - G Íbúðir- Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2 - F2180640
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu gistileyfis - Gististaður í flokki II - G Íbúðir - Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2 (8 manns).


Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
4. 202406005 - Framkvæmd Sindrabær breytingar 2024
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna leggur fram fundargerðir vegna opnana tilboða í ljós og ljósborð - stýringu í Sindrabæ.

1. Ljósborð-ljósastýringu

Kostnaðaráætlun var 2.500.000 kr.
Það komu tvö tilboð í ljósborð - ljósastýringu:

Exton 1.953.238 kr.
Luxor tækjaleiga 3.566.500 kr. (uppfyllir ekki kröfur)

Lagt er til að tilboði Exton í ljósborð - ljósastýringu verði tekið.

2. Sviðsljós SINDRABÆR

Kostnaðaráætlun var 10.500.000 kr.
Sex tilboð bárust í sviðsljós

Exton ehf. 9.995.246 kr.
Atendi ehf 10.348.404 kr.
Sonik Tækni 7.749.256 kr.
Martölvan ehf. 3.990.160 kr.
Martölvan ehf. 5.830.000 kr.
Luxor tækjaleiga 13.384.224 kr.

Yfirferð gagna stendur enn yfir til að tryggja að framangreind tilboð uppfylli skilyrði útboðsins.


Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að ganga til samninga við Exton ehf. varðandi ljósborð-ljósastýringu, þar sem félagið er lægstbjóðandi í verkið við opnun tilboða.

Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að ganga til samninga varðandi sviðsljós við lægstbjóðanda sem uppfyllir kröfur útboðsins þegar yfirferð gagna er lokið.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Björn Þór Imsland, umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
5. 202602041 - Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns
Fyrir fund bæjarráðs þann 19.05.2026 var lögð fram krafa fyrrum lóðarhafa að Óslandsvegi 2 um viðurkenningu á bótaskyldu vegna afturköllunar lóðarinnar. Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs var falið að útbúa drög að svörum í samvinnu við lögmann.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs óskaði eftir heimild bæjarráðs í tölvupósti til að senda svarbréf til lögmanns fyrrum lóðarhafa. Samþykki var veitt í tölvupósti.


Erindið var samþykkt samhljóða í tölvupósti dags. 28. maí 2026.

Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50 

Til baka Prenta