Dagur Tónlistarskólanna
Opið hús og tónleikar
Dagskrá.
Dagur Tónlistarskólanna er 7. febrúar sem er fæðingardagur Gylfa Þ. Gíslasonar fyrrverandi menntamálaráðherra. Litið er á hann sem „föður“ íslenska tónlistarskólakerfisins vegna framgöngu hans á 7. áratug síðustu aldar um fyrstu lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.
Af því
tilefni ætlar Tónskóli A-skaft. að halda upp á þann dag, sem er n.k. laugardagur, með opnu húsi og
tónleikum. Tónleikarnir verða
í 3 áföngum og hefst fyrsti kl. 11.00 – 11.45. Svo verða aðrir tónleikar kl.
12.00 – 12.45 og 3. Tónleikarnir byrja kl. 13.00 – 13.45. Á milli tónleika ætla
nemendur og kennarar að brydda upp á smá verkefni sem allir sem vilja geta
tekið þátt í. Einnig ætlar kennarahljómsveitin að spila 1-2 lög í lok hverrar
tónleikahóps.
Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessum degi okkar. Húsið er opið til
skoðunar til kl. 14.30 og fólk má koma
og fara að vild.
Dagskrá dagsins:
