Hljóðfæranám

30.8.2016

Hljóðfæranám byggist að miklu leyti á reglubundinni þjálfun og er því að mestu heimanám. Án markvissra æfinga verður árangur rýr.

Hlóðfæri sem kennt er á eru:

Píanó, hljómborð, harmónika, klarínett, þverflauta, saxófónn, trompet, horn, baritone, básúna, gítar, bassi, trommur og söngur. Nemendur í 7. bekk geta sótt um í einkatímum en söngkennari verður að meta hvort röddin sé kominn í þann þroska sem þarf í slíkt nám. Á móti bjóðum við upp á söngnámskeið fyrir 3. - 10. bekk þar sem kennt er í 4-6 manna hópum.

Tónskólinn á töluvert af hljóðfærum sem eru lánuð út til nemenda í 3 ár þeim að kostnaðarlausu, eftir það er innheimt leiga.

Forskólanám.

Ekki er boðið upp á forskóla nám þennan veturinn.

Tónfræðanám

Þegar nemendur hafa lokið einu til þremur árum í námi á sitt hljóðfæri, eða í 6. bekk, fá þau einn tíma á viku í tónfræði. Kennsla fer fram í  5 – 12 manna hópum og er kennt í 45-60 mín. í senn. Í tímum fá nemendur m.a. þjálfun í nótnaritun, tónheyrn, taktþjálfun, tónlistarsögu, hlustun og greiningu. Nemendur taka próf í lok námstímans. Ætlast er til að allir nemendur skólans stundi nám í tónfræði sem er mikilvægur þáttur samhliða hljóðfæranáminu og styrkir nemandann almennt. Nemandi hefur ekki að fullu lokið áfangaprófi á hljóðfærið sitt nema að hafa einnig lokið samsvarandi prófi í tónfræðagreinum.

Samspil

Samspil er hluti þess þjálfunar að læra á hljóðfæri. Í gangi eru margir samspilshópar sem ýmist eru með fastann tíma allt skólaárið, t.d. lúðrasveit, eða í stuttum áföngum, ýmsar popp hljómsveitir og samleikur í smærri hópum.

Einnig fá nemendur æfingu með undirleik eða eru sjálfir að æfa undirleik með öðrum.