Tónskólinn
Námskrá og skóladagatal
Tónskóli A-Skaft. kennir samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskóla sem gefin var út árið 2000. Stefna skólans er að allir nemendur fari í áfangapróf samkvæmt fagnámsskrám.
Nemandi fær 1 klst. á viku í einkatíma á hljóðfæri sem getur skipst frá því að vera 15 mín 4 sinnum í viku niður í 2x 30 mín á viku. Fer það eftir nemanda og hvar hann stendur í náminu. Almenn regla er að nemandi á fyrsta ári mætir 2 x í viku hálftíma í senn. Í 6. bekk byrjar nemandinn í tónfræðanámi sem er 45-60 mín. á viku ásamt einkatímum á hljóðfæri.
Fljótlega eftir að nemandi byrjar í námi fara þau í ýmisskonar samspil sem oftast bætist við einkatímana.
Þegar nemandi er kominn í miðnám þá geta einkatímarnir breyst yfir í 1 tíma á viku í eina klukkustund í senn. Kennari metur það með hverjum nemanda.
Allir nemendur eiga að koma reglulega fram yfir veturinn s.s á nemendatónleikum og eða öðrum uppákomum sem tónskólinn tekur að sér. Ætlast er til að nemandi sé undirbúinn og hafi unnið að verkum sem viðkomandi á að spila.
Forsendan fyrir því að læra á hljóðfæri er að æfa sig heima og gott samstarf sé milli heimilis og skóla.
Skóladagatal 2026 - 2027
19 - 24 ág. starfsdagar
25. ágúst þriðjudagur fyrsti kennsludagur.
25. sept. föstud. Haustþing kennara, nemendur frí.
27.-30. okt. þriðjud.-föstud. Vetrarfrí.
18. des. föstud. síðasti kennsludagur fyrir jólafrí
5. jan. þriðjud. Kennsla hefst eftir jólafrí
13. feb. laugard. Dagur tónlistarskólanna, opið hús og tónleikar m.m.
22. mars mánud. Páskafrí hefst
30. mars þriðjudagur. Kennsla hefst eftir páskafrí
15. apríl fimmtudagur. Frí (starfsdagur)
16. apríl föstudagur. Frí (starfsdagur)
22. apríl fimmtud. Sumardagurinn fyrsti – frí
6.. maí fimmtud. uppstigningardagur - frí
17. maí mánud. annar í hvítasunnu - frí
27. maí þriðjud. Skólaslit.
28. maí - 2. júní starfsdagar.
