Stöður tónlistarkennara

30.8.2016

Í Tónskóla A-Skaft.  eru rúmlega 60 nemendur í einkatímum. Mikið er lagt upp úr samspilshópum og eru starfandi lúðrasveit og ýmsir smærri hópar

Okkur vantar kennara í eftirfarandi stöður:

Trommukennari 30-50% stöðu.

Málmblásturskennari 40% staða ef viðkomandi gæti tekið að sér lúðrasveit. Það þarf að byggja upp þessa deild sem má fara í 100% stöðu.

Forskóli 15% kennsla
tónfræðakennsla 20% staða.

Mikið lagt uppúr samspili svo að allir kennarar sem eru tilbúnir í það bæta það við sig. Einnig eru ýmiss tækifæri í að setja upp námskeið í hljóðtækni. Til staðar er fullbúinn tónleikasalur með fullkomnu hljóðkerfi. Einnig erum við með upptökuforrit.

- Gerð er krafa um menntun í tónlist og reynslu af tónlistarstarfi.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sveigjanleiki, stundvísi og áreiðanleiki

Umsókn sendist á netfangið: tonskoli@hornafjordur.is 

Nánari upplýsingar fást hjá Jóhanni í síma 661-2879.

Kennt er eftir aðalnámsskrá tónlistarskólanna og sendum nemendur reglulega í áfangapróf eftir klassískri og rytmískri námsskrá.. 

Tónskólinn er í rúmgóðu nýuppgerðu húsnæði með rúmlega 100 manna tónleikarsal.