|
|
| 1. 2608009F - Bæjarstjórn Hornafjarðar - 352 |
Fundargerð bæjarstjórnar nr. 352 lögð fram.
Mál tekið fyrir á mínútu 9:55 í upptöku.
|
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
|
|
|
|
| 2. 2608015F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1230 |
Fundargerð bæjarráðs nr. 1230 lögð fram.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 4: Íþróttahús - hönnun og undir lið nr. 15. Tímabundnar umferðaröryggisaðgerðir á hafnarsvæðinu.
Til andsvars Hjalti Þór Vignisson.
Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson.
Hjalti Þór Vignisson tók til máls undir lið nr. 7: Málefni Gagnaveitu Hornafjarðar og undir lið nr. 18: Dýralæknaþjónusta.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið nr. 3: Fræðslu- og frístundanefnd - 140, lið nr. 4: 10. bekkingar í hádegismat í Nýheimum í vetur. Tilraunaverkefni.
Gauti Árnason tók til máls undir lið nr. 3: Fræðslu- og frístundanefnd - 140, lið nr. 6: Vinnuskóli Hornafjarðar 2026, lið nr. 7: Sumarfrístund 2026 og lið nr. 9: FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - opið fyrir umsóknir.
Mál tekið fyrir á mínútu 10:15 í upptöku.
|
| Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar. |
|
|
|
| 3. 2608019F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1231 |
Fundargerð bæjarráðs nr. 1231 lögð fram.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 1: Atvinnu- og menningarmálanefnd - 90, lið nr. 11: Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026 og undir lið nr. 11: Uppbygging miðbæjar á Höfn.
Til andsvars Hjalti Þór Vignisson.
Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Gauti Árnason tók til máls undir lið nr. 7: Umferðaröryggisáætlun.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið nr. 7: Umferðaröryggisáætlun.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið nr. 1: Atvinnu- og menningarmálanefnd - 90, lið nr. 16: Yfirfærsla eigna Kvískerjasjóðs.
Mál tekið fyrir á mínútu 23:55 í upptöku.
|
| Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar. |
|
|
|
| 4. 2609002F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1232 |
Fundargerð bæjarráðs nr. 1232 lögð fram.
Hjalti Þór Vignisson tók til máls undir lið nr. 4: Gott Bakland - Fræðsla fyrir aðstandendur einstaklinga með geðrænar áskoranir.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið nr. 16: Skýrsla Humarhátíðarnefndar 2026.
Gauti Árnason tók til máls undir lið nr. 8: Leiktæki á skólalóð og undir lið nr. 10: Ósland - endurbætur á göngustíg.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 18: Starfsemi leikskólans Sjónarhóls.
Til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið nr. 3: Íbúaráð Öræfum - 12, lið nr. 2: FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - opið fyrir umsóknir.
Mál tekið fyrir á mínútu 41:30 í upptöku.
|
| Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar. |
|
|
|
|
|
| 5. 202609032 - Kosning í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands |
Forseti lagði til að eftirfarandi aðilar verði kosnir í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands:
Aðalmenn: Hjalti Þór Vignisson Sæunn Stefánsdóttir
Varamenn: Gauti Árnason Ingveldur Sæmundsdóttir
Mál tekið fyrir á mínútu 54:50 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tillögu um kosningu í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
| 6. 202605781 - Kosning í nefndir 2026-2030 |
Í erindisbréfi fyrir vinnuhóp um skipulag og þróun velferðarkjarna við Víkurbraut 24-30 kemur fram að þar skuli sitja níu fulltrúar og þar af fjórir sem kosnir eru af bæjarstjórn.
Forseti leggur til að bæjarstjórn kjósi eftirfarandi fulltrúa í vinnuhópinn:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir (B) Tinna Rut Sigurðardóttir (D) Elías Tjörvi Halldórsson (K) Amor Joy Pepito Mantilla (M)
Mál tekið fyrir á mínútu 55:35 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tillögu um kosningu fulltrúa í vinnuhópinn.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
| 7. 202303123 - Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
Lögð er fram tillaga að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040 til afgreiðslu í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 16. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, sbr. fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25. ágúst 2026.
Framlögð gögn eru: Greinargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með svörum við athugasemdum sem bárust við tillögu að aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem auglýst var skv. 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana frá 14. apríl 2026 með athugasemdafresti til 12. júní 2026. Skipulagsgreinargerð, með sýnilegum breytingum frá auglýstri tillögu skv. afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25. ágúst 2026. Forsendu- og umhverfismatsskýrsla, með sýnilegum breytingum frá auglýstri tillögu skv. afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25. ágúst 2026. Viðauki við forsendu- og umhverfismatsskýrslu vegna Birgis í Borgarhöfn í Suðursveit. Fimm skipulagsuppdrættir: 1. Öræfi. 2. Suðursveit og Mýrar. 3. Nes og Lón. 4. Höfn og Nesjahverfi. 5. Fjalllendi. Þemauppdráttur um náttúruvernd.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls. Hjalti Þór Vignisson tók til máls. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls.
Mál tekið fyrir á mínútu 56:25 í upptöku.
|
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki framlagða tillögu að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040, í samræmi við 32. gr. skipulagslaga og 16. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti leggur jafnframt til að bæjarstjórn samþykki svör við athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma tillögunar, sbr. greinargerð umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25.8.2026.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Þá leggur forseti til að bæjarstjórn feli skipulagsfulltrúa að senda samþykkta aðalskipulagstillögu ásamt athugasemdum og umsögnum til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga auk þess að senda þeim sem gerðu athugasemdir svör bæjarstjórnar og auglýsa afgreiðsluna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| A1609-180-U08 SKIPULAGSGREINARGERD til samþykktar ágúst 2026 m br frá augl.tillögu compressed.pdf |
| A1609-179-U08 FORSENDU- OG UMHVERFISMATSSKYRSLA til samþykktar ágúst 2026 m br frá augl.tillögu compressed.pdf |
| A1609-222-U01 Viðauki við forsendu og umhverfismatsskýrslu v Byrgis í Borgarhöfn í Suðursveit.pdf |
| A1609-181-U05 Skipulagsuppdráttur 1 Öræfi.pdf |
| A1609-182-U05 Skipulagsuppdráttur 2 Suðursveit og Mýrar.pdf |
| A1609-183-U05 Skipulagsuppdráttur 3 Nes og Lón.pdf |
| A1609-184-U05 Skipulagsuppdráttur 4 Höfn og Nesjahverfi.pdf |
| A1609-185-U05 Skipulagsuppdráttur 5 Fjalllendi.pdf |
| A1609-186-U02 Þemauppdráttur um náttúruvernd.pdf |
| Svör umhv. og skipul.nefndar við athugasemdum við auglýsingartillögu 25.8.2026.pdf |
|
|
|
| 8. 202410089 - Vegir í náttúru Íslands - Endurskoðun aðalskipulags |
Lögð er fram tillaga að skrá yfir vegi í náttúru Íslands til samþykktar skv. 2. gr. reglugerðar nr. 260/2018 um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd, sbr. fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25.8.2026. Tillagan er sett fram á hjálögðum uppdrætti, dags. 25.8.2026, og í vefsjá með slóðina https://geo.alta.is/hornafjordur/vini/. Við gerð tillögunnar var haft samráð við Vegagerðina og Náttúruverndarstofnun, m.a. með fundum í ágúst 2026. Leitað var umsagna frá Landi og skógi, Náttúrufræðistofnun, samtökum útivistarfélaga, náttúru- og umhverfisverndarsamtökum, Bændasamtökum Íslands og Samtökum ferðaþjónustunnar, sbr. gögn undir máli nr. 11/2023 í Skipulagsgátt.
Tillagan var auglýst og birt í Skipulagsgátt samtímis tillögu að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040. Athugasemdafrestur var frá 14. apríl til 12. júní 2026. Efni þeirra athugasemda sem bárust við vegaskrána er dregið saman í framlagðri greinargerð umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25.8.2026 þar sem einnig er tillaga að svörum við athugasemdunum.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:05:25 í upptöku.
|
Forseti lagði til með vísan í 2. gr. reglugerðar um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd, að bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu að vegaskrá og feli skipulagsfulltrúa að senda hana til Náttúruverndarstofnunar til samþykktar og Vegagerðarinnar, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar og varðveislu.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| A1609-231-U01 Vegir í náttúru Íslands.pdf |
|
|
|
| 9. 202607044 - Deiliskipulag - Álaugarey |
Lögð er fram tillaga um að hefja vinnu við deiliskipulag í Álaugarey í samræmi við 40. gr. skipulagslaga.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:07:30 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að hafin yrði vinna við deiliskipulag í Álaugarey í samræmi við 40. gr. skipulagslaga. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
| 10. 202602002 - Deiliskipulag - Jörðin Birgi í Borgarhöfn |
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi vegna uppbyggingar á jörðinni Birgi í Borgarhöfn, Suðursveit. Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu þriggja til fjögurra störnu hótels ásamt tengdri starfsmannaaðstöðu. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 13. maí til 26. júní 2026 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Átta umsagnir bárust.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:08:55 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að tillaga að deiliskipulagi verði send til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| 2524-DSK-101- 3.pdf |
| 2524-DSK Greinargerð fyrir landið Birgi - 5.pdf |
| Birgi umsagnir og svör á auglýsingatíma.pdf |
|
|
|
| 11. 202602006 - Deiliskipulag - Skarðshólar |
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi á Skarðshólum. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við Aðalskipulag Hornafjarðar 2012 - 2030 þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland. Skilgreindur er byggingarreitur fyrir íbúðarhúsi og útihúsi auk aðkomu að svæðinu. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 15. apríl til 30. maí 2026 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Þrjár athugasemdir bárust en þær kalla ekki á viðbrögð vegna auglýstrar tillögu.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:08:55 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að tillaga að deiliskipulagi verði send til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| 113229-001-DSK-V08-Skarðshólar eftir auglýsingu.pdf |
|
|
|
| 12. 202605833 - Deiliskipulag - Velferðarkjarni Víkurbraut |
Ákveðið var í bæjarráði á fundi ráðsins nr. 1227 þann 28. júlí 2026 að hefja skyldi undirbúning að endurskoðun deiliskipulags á svæðinu við Víkurbraut 24-30 og nærliggjandi reitum. Verkefnið tengist stefnumörkun sveitarfélagsins um uppbyggingu velferðarkjarna á svæðinu, þar sem horft verði heildstætt til framtíðaruppbyggingar búsetuúrræða, öldrunarþjónustu, þjónustu við fatlað fólk, hjúkrunarheimilis og heilbrigðisþjónustu. Í stefnu um framtíðarsýn í málefnum aldraðra 2026-2034 er lögð áhersla á fjölbreytta þjónustu, inngildandi samfélag og sjálfstætt líf, auk þess sem sérstaklega er gert ráð fyrir að unnið verði að endurskoðun deiliskipulags á Víkurbraut S3 og reit heilbrigðisstofnunarinnar með það að markmiði að móta velferðarkjarna. Samhliða þessari vinnu verður stofnaður vinnuhópur sérfræðinga og hagsmunaaðila sem mun leiða vinnuna. Lögð er fram tillaga um að hefja vinnu við að breyta gildandi deiliskipulagi HSSA og deiliskipulagi austan Víkurbrautar S3 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Gauti Árnason tók til máls.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:09:50 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að hafin verði vinna við að breyta gildandi deiliskipulagi HSSA og deiliskipulagi austan Víkurbrautar S3 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
| 13. 202608026 - Lóðir fyrir verslun og þjónustu á miðsvæði |
Lögð er fram tillaga að því að unnin verði breyting á gildandi deiliskipulagi í Miðbæ - Sandbakkavegi á Höfn í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:12:25 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að unnin verði breyting á gildandi deiliskipulagi í Miðbæ - Sandbakkavegi á Höfn í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
| 14. 202505009 - Reglur um stuðningsþjónustu |
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um stuðningsþjónustu í sveitarfélaginu.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:13:00 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um stuðningsþjónustu í sveitarfélaginu.
Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um stuðningsþjónustu 2026.pdf |
|
|
|
| 15. 202505038 - Reglur um stoðþjónustu |
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um stoðþjónustu í sveitarfélaginu.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:13:20 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um stoðþjónustu. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Reglur um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir 2026.pdf |
|
|
|
| 16. 202104012 - Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks |
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:13:50 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Reglur um akstursþ fatlaðra 2026.pdf |
|
|
|
| 17. 202104011 - Reglur um akstursþjónustu aldraðra |
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:14:10 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti nýjar reglur um akstursþjónustu aldraðra. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Reglur um akstursþjónustu aldraðra 2026.pdf |
|
|
|
| 18. 202512087 - Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26 |
Lagðar eru fram endurskoðaðar reglur um verkefnastyrki sveitarfélagsins.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:14:35 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um verkefnastyrki sveitarfélagsins. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Reglur_verkefnastyrkir_2026.pdf |
| Matsblad-verkefnastyrkir-SVH.pdf |
|
|
|
| 19. 202602110 - Menningarhátíð 2026 |
Lagðar eru fram endurskoðaðar reglur um Menningarverðlaun sveitarfélagsins.
Mál tekið fyrir á mínútu 1:14:55 í upptöku.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um Menningarverðlaun sveitarfélagsins. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Reglur_Menningarverðlaun_2026.pdf |
|
|
|