|
|
| 1. 2608013F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 90 |
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar nr. 90 lögð fram.
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
| |
| Gestir |
| Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar |
|
|
| 2. 2608017F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 119 |
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 119 lögð fram.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson, skipulags- og byggingafulltrúi |
|
|
|
|
| 3. 202608058 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031 |
Fjármálastjóri leggur fram forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027 til 2031.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri |
|
|
| 4. 202606097 - Framtíð Íbúðafélags Hornafjarðar |
Bæjarstjóri óskar eftir heimild bæjarráðs til áframhaldandi viðræðna um sölu á íbúðum Íbúðafélags Hornafjarðrar hses. til Brákar leigufélags hses.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að halda áfram viðræðum um sölu á íbúðum Íbúðafélags Hornafjarðar hses. til Brákar leigufélags hses. |
|
| |
| Gestir |
| Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri |
|
|
| 5. 202607047 - Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga - grænbók |
Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið.
Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greining áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum.
Óskað er eftir því að sveitarfélögin veiti upplýsingar inn í þessa vinnu og svari meðfylgjandi spurningum fyrir 21. september nk. Ekki verður vitnað í einstaka svör sveitarfélaga í grænbókinni heldur er hvert innlegg mikilvægur þáttur í því að draga fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.
Fyrstu drög að svörum lögð fram til umræðu og kynningar. (Það á eftir að fara miklu betur yfir þetta en gott að fá fram hvað bæjarfulltrúar vilja leggja áherslu á í svörum okkar).
|
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 6. 202608078 - Ársþing SASS 2026 |
Lögð eru fram gögn varðandi ársþing SASS 29. - 30. október 2026.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 7. 202212047 - Umferðaröryggisáætlun |
Lögð er fram til samþykktar umferðaröryggisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2026-2036. Í áætluninni eru mörkuð markmið sveitarfélagsins til næstu ára á sviði umferðaröryggis. Þar er fjallað um helstu áskoranir ásamt úrræðum og aðferðafræði sem miða að því að fækka slysum og stuðla að öruggari umferð. Með áætluninni verður stefnumótun sveitarfélagsins skýrari, sem auðveldar upplýsta ákvarðanatöku og markvissa forgangsröðun aðgerða. Tekið er fram að samþykkt áætlunarinnar felur í sér staðfestingu á stefnumörkun sveitarfélagsins, en ekki samþykkt einstakra aðgerða eða fjárveitinga til þeirra.
|
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að umferðaröryggisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2026-2036 verði samþykkt.
Jafnframt felur bæjarráð sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna nánari forgangsröðun og kostnaðaráætlun fyrir verkefni áætlunarinnar og leggja fram tillögur að aðgerðum fyrir framkvæmdaráætlun næsta árs. Þá er bæjarstjóra falið að halda áfram samtali við Vegagerðina um sameiginlegar framkvæmdir í tengslum við áætlunina.
Málinu vísað til bæjarstjórnar. Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andersson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 8. 202608086 - Boð um þátttöku í vinnufundi um náttúrumiðaðar lausnir |
Sveitarfélaginu er boðið að taka þátt í vinnufundi um náttúrumiðaðar lausnir sem umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið boðar til í tengslum við gerð loftslagsstefnu Íslands. Fundurinn fer fram í safnaðarheimilinu í Laugarnesskirkju 16. september kl. 13:00 - 16:00. Á fundinum verður m.a. rætt um hlutverk náttúrumiðaðra lausna í loftslagsaðgerðum og helstu tækifæri og áskoranir og hvernig slíkar lausnir geti stutt við loftslagsmarkmið í sátt við íslenska náttúru.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra loftslagslaga á Alþingi í vor og er þar kveðið á um gerð loftslagsstefnu. Ráðgefandi stýrihópur hefur þegar verið skipaður vegna vinnunnar, en gerð loftslagsstefnu er umfangsmikið verkefni sem felur í sér viðamikið samráð og er fundurinn um náttúrumiðaðar lausnir liður í þeirri vinnu.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 9. 202608076 - Umferðaþing Samgöngustofu |
Opnað hefur verið fyrir skráningu á Umferðarþing sem haldið verður þann 22. september næstkomandi í Gamla Bíói. Yfirskrift þingsins í ár er Ungt fólk og umferðin. Á þinginu verður sjónum beint að stöðu, reynslu og viðhorfum ungs fólks í umferðinni, sem og þeim áskorunum og tækifærum sem felast í því að stuðla að auknu umferðaröryggi og ábyrgri þátttöku þeirra í samgöngum.
Sérfræðingar frá ólíkum sviðum deila þekkingu sinni og reynslu. Þá fáum við einnig tækifæri til að heyra beint frá unga fólkinu sjálfu og fá innsýn í hvernig þau upplifa umhverfi sitt í umferðinni og hvaða sjónarmið þau telja mikilvægt að hafa í huga til að stuðla að öruggari umferð.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 10. 2608068 - Hugmynd að samstarfi við Glaciers of Höfn |
Erindi um samstarf við sveitarfélagið frá Glaciers of Höfn.
|
Bæjarráð tekur jákvætt í hugmynd um samstarf og vísar erindinu til atvinnu- og menningarmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar til umræðu.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 11. 202509060 - Uppbygging miðbæjar á Höfn |
Minnisblað bæjarstjóra vegna uppbyggingar miðbæjar á Höfn lagt fram.
|
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fram tímalínu og áætlun um samráð við íbúa og hagsmunaaðila.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 12. 202607050 - Umsókn um lóð - Vesturbraut 29 |
Tölvupóstur barst frá Verkfærni ehf. þann 27.8.2026 þar sem óskað er eftir því að skila lóðinni Vesturbraut 31.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða skil á lóðinni. Verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála er falið að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins. |
|
|
|
| 13. 202607049 - Umsókn um lóð - Vesturbraut 31 |
Tölvupóstur barst frá Verkfærni ehf. þann 27.8.2026 þar sem óskað er eftir því að skila lóðinni Vesturbraut 31.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða skil á lóðinni. Verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála er falið að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins. |
|
|
|
| 14. 202608085 - Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands |
Náttúruhamfaratrygging Íslands sendir dreifibréf til allra sveitarfélaga á Íslandi með áminningu um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 15. 202608079 - Nýheimadagurinn |
Þann 9. september næstkomandi er stefnt á að halda Nýheimadaginn 2026 í fyrirlestrasal Nýheima. Gert er ráð fyrir um 12 mínútna kynningu frá hverri stofnun sem starfar í húsinu og sameiginlegu kaffi.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 16. 202608084 - Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna 56. umdæmisþings Kiwanis - Ungmennafélagið Sindri |
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsöng bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í íþróttahúsinu við Heppuskóla vegna 56. umdæmisþings Kiwanis. Umsækjandi er Ungmennafélagið Sindri, kt. 430380-0609. Áætlaður gestafjöldi er 350 manns.
|
| Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn. |
|
|
|
| 17. 202608071 - Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna 56.umdæmisþings Kiwanis - Kiwanisklúbburinn Ós |
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsöng bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Sindrabæ vegna 56. umdæmisþings Kiwanis. Umsækjandi er Kiwanisklúbburinn Ós, kt. 601094-2239. Áætlaður gestafjöldi er 250 manns.
|
| Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn. |
|
|
|
| 18. 202605839 - Undirbúningur framkvæmdar - Báran - endurnýjun gervigrass |
Báran - endurnýjun á gervigrasi, 2. áfangi. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
|
| Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að vinna málið áfram. |
|
|
|