|
|
| 1. 2608020F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 120 |
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 120 lögð fram.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson, skipulags- og byggingafulltrúi |
|
|
| 2. 2608014F - Hafnarstjórn Hornafjarðar - 285 |
Fundargerð Hafnarstjórnar nr. 285 lögð fram.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
|
|
| 3. 2608021F - Íbúaráð Öræfum - 12 |
Fundargerð íbúaráðs í Öræfum nr. 12 lögð fram.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
|
|
|
|
| 4. 202502025 - Gott Bakland - Fræðsla fyrir aðstandendur einstaklinga með geðrænar áskoranir |
Í kjölfar þess að Gott bakland og Velferðarsvið héldu viðburðinn Gott geð í apríl sl. ákváðu sömu aðilar að halda jafningjanámskeið á vegum Trausts kjarna um mánaðarmótin nóvember/desember næstkomandi. Aðilar sem standa að baki verkefninu hafa óskað eftir fundi með bæjarráði til að kynna verkefnið og óska eftir stuðningi frá sveitarfélaginu.
|
| Bæjarráð þakkar fyrir kynningu á verkefninu og er jákvætt fyrir að styrkja verkefnið. Fjármálastjóra er falið að meta fjárhagsleg áhrif af því að styrkja verkefnið um 1.000.000 kr. og þá eftir atvikum gera viðauka við fjárhagsáætlun. |
|
| |
| Gestir |
| Sigrún Bessý Guðmundsdóttir, stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu |
| Eyjólfur Guðmundsson |
|
|
| 5. 202607047 - Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga - grænbók |
Lögð eru fram drög að svörum Sveitarfélagsins Hornafjarðar við spurningum Innviðaráðuneytisins í tengslum við stefnumótun í málefnum sveitarfélaga.
|
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að skila svörum sveitarfélagsins til Innviðaráðuneytisins.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 6. 202608083 - Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir malbikunarstöð |
Colas Ísland ehf. óskar eftir leyfi sveitarfélagsins til að setja upp malbikunarstöð í sex vikur, frá og með 14. september, við salthaugana á Ægissíðu. Stöðin starfar samkvæmt starfsleyfi frá Umhverfisstofnun. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið skili svæðinu í sama ástandi og það tók við því.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita Colas Íslandi ehf. leyfi til að setja upp malbikunarstöð í sex vikur, frá og með 14. september 2026, við salthaugana á Ægissíðu en leggur áherslu á að svæðinu verði skilað í sama ásigkomulagi og þegar tekið var því. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson, skipulags- og byggingafulltrúi |
|
|
| 7. 202608044 - Mögulega mengaður jarðvegur á lóð fyrrum bensínstöðvar |
Möguleg mengun jarðvegs á lóð fyrrum bensínstöðvar við Hafnarbraut 38 kom til skoðunar í tengslum við fyrirhugaða byggingu íþróttahúss. Þar sem svæðið er nálægt leiksvæði barna er talið rétt að rannsaka jarðveginn frekra m.t.t. mögulegrar mengunar, jafnvel þótt íþróttahúsið verði að lokum byggt á öðrum stað. Málinu var vísað til bæjarráðs frá umhverfis- og skipulagsnefnd.
|
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að kanna lagalega ábyrgð í málinu, fara yfir sýnatöku og kanna kostnað við framkvæmdina að fullu.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Xiaoling Yu, verkefnastjóri umhverfismála |
|
|
| 8. 202608088 - Leiktæki á skólalóð |
Tekið er fyrir erindi frá Ynju Maríu og Freyju Eir Skúladætrum, nemendum við Grunnskóla Hornafjarðar, þar sem óskað er eftir fjölgun leiktækja á skólalóð ásamt lagfæringum á aparólu. Jafnframt er lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs, dags. 3. september 2026, þar sem farið er yfir kostnaðarmat og tillögur að úrbótum.
|
Bæjarráð fagnar frumkvæði nemendanna og þakkar þeim fyrir vel framsett og brýnt erindi. Það er mikilvægt að raddir unga fólksins heyrist þegar kemur að mótun þeirra nánasta umhverfis. Bæjarráð tekur undir tillögur í minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og samþykkir samhljóða að fela Umhverfis- og framkvæmdasviði að ljúka nauðsynlegum lagfæringum á aparólunni fyrir næstu öryggisúttekt í október 2026. Standist tækið ekki þá úttekt verði gert ráð fyrir kaupum á nýrri aparólu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Bæjarráð vísar erindinu áfram til fræðslu- og frístundanefndar og ungmennaráðs til heildarendurskoðunar á endurbótum skólalóðar sem skal vera tilbúin fyrir fjárhagsáætlun næsta árs. Fræðslu- og frístundanefnd er falið að halda utan um verkefnið.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu og framkvæmda |
| Bartek Andersson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 9. 202509060 - Uppbygging miðbæjar á Höfn |
Lagt er fram minnisblað með fyrstu vinnudrögum að samningi við Landsbyggð um uppbyggingu miðbæjar á hafnarsvæðinu ásamt athugasemdum starfsmanna.
|
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra fyrir kynninguna og felur honum að semja við ráðgjafa vegna framhalds verkefnisins. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 10. 202608022 - Ósland - endurbætur á göngustíg |
Ósland - endurbætur á göngustígum. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
|
| Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdina að gefnu samþykki Náttúrufræðistofnunar. |
|
| |
| Gestir |
| Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu og framkvæmda |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 11. 202605839 - Undirbúningur framkvæmdar - Báran - endurnýjun gervigrass |
Báran - endurnýjun á gervigrasi. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
|
Það er mat bæjarráðs að markaðskönnun skv. 45. gr. laga um opinber innkaup vegna innkaupa á gervigrasi hafi leitt í ljós að um útboðsskyld innkaup sé að ræða. Bæjarráð leggur fyrir umhverfis- og framkvæmdasvið að bjóða innkaupin út skv. lögum um opinber innkaup og hafna fram komnum tilboðum sem bárust í kjölfar óformlegra verðfyrirspurna.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu og framkvæmda |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 12. 202408066 - Áhaldahús - Ecoraster |
Sala á Ecoraster grindum - minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að selja grindurnar. |
|
| |
| Gestir |
| Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu og framkvæmda |
|
|
| 13. 202602110 - Menningarhátíð 2026 |
Atvinnu- og menningarmálanefnd hefur unnið að endurbótum á reglum um menningarverðlaun sveitarfélgsins. Meðfylgjandi eru uppfærðar reglur sem samþykktar voru á síðasta fundi nefndarinnar. Lagt fram til samþykkis hjá bæjarráði og í kjölfar bæjarstjórn.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um menningarverðlaun sveitarfélagsins og vísar málinu til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu. |
| Reglur_Menningarverðlaun_2026.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar |
|
|
| 14. 202512087 - Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26 |
Atvinnu- og menningarmálanefnd hefur unnið að endurbótum á reglum um verkefnastyrki sveitarfélgsins. Meðfylgjandi eru uppfærðar reglur sem samþykktar voru á síðasta fundi nefndarinnar og hjá fræðslu- og frístundanefnd í vor. Lagt fram til samþykkis hjá bæjarráði og í kjölfar bæjarstjórn.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um verkefnastyrki sveitarfélagsins og vísar málinu til formlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. |
|
| |
| Gestir |
| Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar |
|
|
| 15. 202608054 - Vinnurými fyrir listamenn |
Reynir Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið. Á síðasta fundi atvinnu- og menningarmálanefndar voru tekin fyrir möguleg vinnurými fyrir listamenn á vegum sveitarfélagsins. Lagt er fram minnisblað um næstu skref í þessu máli.
|
Bæjarráð frestar málinu þar til framtíð Miklagarðs liggur fyrir. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 16. 202609024 - Skýrsla Humarhátíðarnefndar 2026 |
Skýrsla Humarhátíðarnefndar árið 2026 lögð fram til kynningar ásamt því að aðilar úr nefndinni komu til að fylgja skýrslunni eftir.
|
| Bæjarráð þakkar góða kynningu og leggur áherslu á hversu þakkarvert það er að humarhátíðarnefnd gefi tíma sinn í að halda þessa hátíð fyrir bæjarbúa og gesti. |
|
| |
| Gestir |
| Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar |
| Róslín Alma Valdemarsdóttir, humarhátíðarnefnd |
| Svandís Perla Snæbjörnsdóttir, humarhátíðarnefnd |
| Emil Örn Morávek, humarhátíarnefnd |
|
|
| 17. 202510018 - Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins |
Eyrún Fríða Árnadóttir óskar eftir umræðu um málefni heilbrigðiseftirlitsins í ljósi fyrirhugaðra breytinga með mögulegum áhrifum á verkefni og fjármál sveitarfélaganna. Til upplýsinga er lögð fram umsögn bæjarráðs um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum auk minnisblaðs framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
|
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Austurlands á fund með bæjarráði til að ræða þau verkefni sem eru framunda.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 18. 202609026 - Starfsemi leikskólans Sjónarhóls |
Tvö erindi bárust bæjarstjórn í liðinni viku varðandi starfsemi leikskólans. Á sama tíma hefur verið unnið að því í stjórnsýslu sveitarfélagsins að efla leikskólann. Fyrir fundinum liggur minnisblað með tillögum til úrbóta.
|
| Bæjarráð þakkar góða kynningu á þeim úrbótum sem stendur til að fara í vegna málefna leikskólans. Bæjarráð samþykkir samhljóða að auglýsa viðbótarstöðugildi á skrifstofu leikskólans sem allra fyrst og felur leikskólastjóra í samráði við mannauðsstjóra að vinna málið áfram ásamt fjármálastjóra og þá fá mat á fjárhagslegum áhrifum og eftir atvikum viðauka við fjárhagsáætlun. |
|
| |
| Gestir |
| Ólafur Árnason, mannauðsstjóri |
|
|
| 19. 202604043 - Atvikaskráning kjörinna fulltrúa |
Mannauðsstjóri leggur fram minnisblað um atvikaskráningu kjörinna fulltrúa sem óskað var eftir að yrði skoðað af hálfu bæjarráðs.
|
| Bæjarráð felur mannauðsstjóra að vinna málið áfram og fjármálastjóra að meta fjárhagsleg áhrif og þá eftir atvikum gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna tilboðs í vinnu við atvikaskráningu og eftirfylgd mála sem tengjast kjörnum fulltrúum. |
|
| |
| Gestir |
| Ólafur Árnason, mannauðsstjóri |
|
|
| 20. 202505092 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 60C |
Erindi barst frá Hallgrími Þór Sigurðssyni, arkitekt, fyrir hönd Yrki eignir ehf., þar sem óskað er eftir fresti til loka febrúar 2027 til að leggja fram aðaluppdrætti vegna fyrirhugaðrar bensínstöðvar N1 á lóðinni Hafnarbraut 60C. Vinna við hönnun verkefnisins er í fullum gangi.
|
Bæjarráð samþykkir framlengingu á fresti til að hefja framkvæmdir á lóðinni.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andersson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 21. 202602079 - Landsþing sambands Íslenskra sveitarfélaga |
Lögð eru fram drög að stefnumótun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 til kynningar.
|
| Drög að stefnumótun lögð fram til kynningar. |
|
|
|
| 22. 202601163 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 |
Lögð er fram fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
|
|