Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Velferðarnefnd - 54

Haldinn í Miðgarði,
20.10.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Tinna Rut Sigurðardóttir formaður,
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir varaformaður,
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður,
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður,
Amor Joy Pepito Mantilla Áheyrnarfulltrúi til vara,
Daníel Elí Gíslason Fulltrúi ungmennaráðs,
Finnur Smári Torfason varamaður,
Skúli Ingibergur Þórarinsson .
Fundargerð ritaði: Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs


Dagskrá: 
Fundargerðir nefnda og ráða
1. 2609013F - Fjölmenningarráð - 30
Fundargerð 30. fundar fjölmenningarráðs lögð fram til kynningar

Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir yfirferðina. Nefndin gerir ekki athugasemdir við fundargerðina.
 
Gestir
Anna Birna Elvarsdóttir
2. 2609015F - Öldungaráð - 23
Fundargerð 23. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar

Velferðarnefnd þakkar Sigrúnu Bessý fyrir yfirferðina. Nefndin gerir ekki athugasemdir við fundargerðina.
 
Gestir
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir
Almenn mál
3. 202608067 - Öldrunarþjónusta í Öræfum
Lögð eru fram drög að verktakasamningi vegna fyrirhugaðs félagsstarfs og virkni starfs og mögulegrar veitingu stuðnings- og akstursþjónustu fyrir eldri borgara í Öræfum. Um er að ræða tilraunaverkefni frá 1. nóvember til 31. desember 2026, þar sem byrjað verður á 4 klst. vikulegri þjónustu í Hofgarði með möguleika á framlengingu til eins árs.

Velferðarnefnd fagnar framkomnum drögum að verktakasamningi félagsstarf, virkni, stuðnings- og akstursþjónustu í Öræfum. Nefndin telur verkefnið afar brýnt til að efla lífsgæði og þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu og samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög fyrir sitt leyti. Velferðarnefnd beinir málinu til frekari umræðu í bæjarráði.
4. 202502025 - Gott Bakland - Fræðsla fyrir aðstandendur einstaklinga með geðrænar áskoranir
Lögð er fram til kynningar í velferðarnefnd stöðuskýrsla og yfirlit yfir þróunarverkefnið Gott bakland, sem rekið hefur verið á vegum velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá hausti 2024. Markmið verkefnisins er að efla stuðningsnet og bakland aðstandenda og einstaklinga sem glíma við geðrænar áskoranir í heimabyggð. Farið er yfir reynslu af mánaðarlegum samverum, nýtingu fræðsluefnis, fjármögnun ársins 2026 sem tryggð er með styrkjum frá sveitarfélaginu, Styrktarsjóði geðheilbrigðis og AFL Starfsgreinafélagi, ásamt næstu skrefum sem fela í sér uppbyggingu jafningjastuðnings í samstarfi við Traustan kjarna. Jafnframt er kynnt framtíðarsýn um sjálfstætt félagaform verkefnisins í nánu samstarfi við velferðarsvið.

Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar þakkar kynninguna á stöðu þróunarverkefnisins Gott bakland. Nefndin fagnar þeim góða árangri sem náðst hefur í stuðningi við aðstandendur og einstaklinga með geðrænar áskoranir í heimabyggð, sem og þeim öflugu styrkjum sem verkefnið hefur hlotið frá Sveitarfélaginu Hornafirði, Styrktarsjóði geðheilbrigðis og AFL Starfsgreinafélagi sem gerir okkur kleift að halda verkefninu gangandi.

Velferðarnefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að efla jafningjastuðning og stuðningsnet á landsbyggðinni þar sem aðgengi að sérhæfðri þjónustu er oft takmarkað. Nefndin lýsir yfir ánægju með fyrirhugað námskeið með Traustum kjarna um mánaðarmót nóvember og desember næstkomandi og styður áframhaldandi framgang verkefnisins í átt að sjálfstæðu félaga-formi í nánu samstarfi við velferðarsvið.
 
Gestir
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir
5. 202608058 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Sviðsstjóri leggur fram tillögu að fjárhagsrömmum velferðarsviðs fyrir fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027.

Velferðarnefnd þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á fjárhagsramma velferðarsviðs fyrir árið 2027. Ljóst er að einhver hækkun verður á útgjöldum sviðsins, sem skýrist af almennum verðlagshækkunum sem og nauðsynlegum viðbótum til að mæta aukinni þjónustuþörf í mikilvægum og í flestum tilfellum lögbundnum verkefnum.
Nefndin fagnar því sérstaklega að horft sé til niðurstaða úttektar á stuðnings- og virkniþjónustu við ákvörðun um nýtingu fjármagns og forgangsröðun í málaflokknum fyrir komandi rekstrarár.
Nefndin samþykkir framlagða ramma fyrir sitt leyti og vísar þeim til áframhaldandi vinnslu við gerð fjárhagsáætlunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031.
6. 202610028 - Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr.382018
Lögð eru fram drög að umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (mál nr. FRN26040125 í Samráðsgátt stjórnvalda).

Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar veigamiklar breytingar á framkvæmd og umgjörð þjónustu við fatlað fólk, m.a. um lágmarksstærð þjónustusvæða, lögfestingu samræmds mats á stuðningsþörfum (SIS-mats), nýjar reglur um forgang í félagslegu húsnæði fyrir einstaklinga sem sæta öryggisráðstöfunum, samræmda grunnskráningu og formlegt notendasamráð.


Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar tekur heilshugar undir framlögð drög að umsögn sveitarfélagsins um frumvarp til breytinga á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Nefndin leggur ríka áherslu á að undanþáguheimild frá lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða verði skýr í lögum og ekki háð of íþyngjandi fyrirvörum. Hér er um að ræða afar viðkvæma þjónustu þar sem mikilvægt er að notendur og fjölskyldur þeirra njóti hágæðaþjónustu, stöðugleika og öryggis frá sínu nærsamfélagi. Fyrir landfræðilega afmörkuð sveitarfélög eins og Hornafjörð er nálægð og samfella í þjónustu lykilforsenda gæða sem ekki má fórna fyrir stærðarhagræðingu.
Umsögn um þingmál.pdf
7. 202610073 - Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna
Sviðsstjóri velferðarsviðs gerði grein fyrir tveimur styrkumsóknum Sveitarfélagsins Hornafjarðar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna nýauglýstra styrkja til sveitarfélaga í þágu farsældar barna.

Annars vegar er um að ræða heildstætt forvarnar- og innleiðingarverkefni undir vinnuheitinu „Örugg saman í Hornafirði“. Verkefnið tekur til barna og ungmenna frá elsta árgangi leikskóla upp í 18 ára aldur. Á yngra stigi (leikskóli í 6. bekk) er lögð áhersla á félagsfærni og samræmda þjónustu í Kátakoti og frístund fatlaðra barna. Á eldra stigi (7.-10. bekkur og FAS) er horft til geðheilbrigðis, svefnvenja og snjalltækjanotkunar í samræmi við niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, í samstarfi við félagsmiðstöðina Þrykkjuna og mögulega samfélagslögregluna og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Verkefninu yrði stýrt af innleiðingarleiðtoga í 50% starfshlutfalli í tvö ár sem vinnur að heildstæðri verklagshandbók. Áætlaður heildarkostnaður er 20.400.000 kr., þar af er sótt um 15.200.000 kr. í styrk en eigið framlag sveitarfélagsins nemur 5.200.000 kr.

Hins vegar kynnti sviðsstjóri sérhæft virkni- verkefni undir vinnuheitinu „Anime-Hornið“, en hugmyndin er komin frá virkniráðgjafa í vinnu og hæfingarstöðinni Selinu. Verkefnið er ætlað stúlkum í 8.?10. bekk og mögulega FAS sem standa utan hefðbundins skipulags tómstunda- og íþróttastarfs. Með vikulegum hittingum í Selinu yrði skapaður öruggur og rólegur vettvangur þar sem unnið er með teikningu, persónusköpun og japanska menningu undir handleiðslu virkniráðgjafa í 20% starfshlutfalli. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, efla sjálfsmynd og byggja brú yfir í virka félagslega þátttöku. Heildarkostnaður verkefnisins er 4.500.000 kr., sótt er um 3.500.000 kr. í styrk og er eigið framlag sveitarfélagsins 1.000.000 kr.


Velferðarnefnd fagnar framkomnum verkefnahugmyndum og lýsir yfir fullum stuðningi við báðar styrkumsóknirnar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að mæta ólíkum þörfum barna og ungmenna í sveitarfélaginu með heildstæðum og gagnreyndum hætti í anda laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Sérstaklega er ánægjulegt að sjá það víðtæka þverfaglega samstarf sem liggur að baki verkefninu Örugg saman í Hornafirði, þar sem skólastig, frístundamiðstöð, samfélagslögregla og heilsugæsla leggjast á eitt um að efla félagsfærni og fyrirbyggja einelti og ofbeldi. Þá telur nefndin framtakið í Selinu vera ekki síður mikilvægt skref til að sporna gegn félagslegri einangrun unglingsstúlkna og styðja við andlega vellíðan þeirra.

Velferðarnefnd fagnar fyrirliggjandi umsóknum og vísar málinu áfram til bæjarráðs með ósk um staðfestingu á framlagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar í verkefnunum komi til þess að styrkumsóknirnar verði samþykktar.
Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna - Anime-Hornið.pdf
Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna - Örugg saman.pdf
8. 202508028 - Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir
Lagt er fram minnisblað og drög að endurskoðun á reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða breytingatillögu á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðnignsþarfir.

Málinu vísað áfram til bæjarráðs til frekari umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta