Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1222

Haldinn í ráðhúsi,
26.05.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Eyrún Fríða Árnadóttir formaður,
Gauti Árnason varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jóna Benný Kristjánsdóttir, Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2605007F - Velferðarnefnd - 51
Lögð er fram til kynningar fundargerð velferðarnefndar nr. 51.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs
2. 2605002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 116
Lögð er fram fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 116 til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
 
Gestir
Gunnlaugur Róbertsson, skipulags- og byggingafulltrúi
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Almenn mál
3. 202601085 - Fjárhagsaðstoð 2026
Árlega er farið ítarlega yfir reglur um fjárhagsaðstoð hjá Sveitarfélaginu Hornafirði og þær rýndar með það fyrir augum að uppfæra þær í takt við breytingar í löggjöfinni og aðlaga þær að þjónustunni hverju sinni.

Breytingarnar eru að hluta til tæknilegar vegna breytinga á orðalagi, framkvæmd og greiðslukerfum hjá öðrum stofnunum, einkum Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun. Þá eru einnig gerðar efnislegar breytingar á framkvæmd fjárhagsaðstoðar t.d. hvað varðar greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann og skýrari ákvæði um umsækjendur sem eru í áfengis- eða vímuefnaneyslu.


Bæjarráð þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir góða yfirferð á breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð.

Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs
4. 202605056 - Endurskoðun byggðakvótakerfisins
Byggða- og nýsköpunarfulltrúi leggur fram umsagnir sem borist hafa frá Skinney-Þinganesi og Hrollaugi, félagi smábátaeigenda.

Bæjarráð felur byggða- og nýsköpunarfulltrúa að vinna málið áfram og skila inn umsögn í dag.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Nejra Mesetovic, byggða- og nýsköpunarfulltrúi
5. 202510067 - Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó
Bæjarráð óskaði eftir að sjá myndir í 3D af áformum um hleðslustöð við Nettó.

Skipulags- og byggingafulltrúi leggur fram umbeðin gögn.


Bæjarráð er jákvætt fyrir hugmyndinni um lóðarvilyrði en vísar verkefninu til kynningar og ákvörðunar hjá nýju bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Gunnlaugur Róbertsson, skipulags- og byggingafulltrúi
6. 202605807 - Stöðuleyfisumsókn Vesturbraut 1, Umsókn um götu og torgsölu fyrir matarvagn N1
Lagt fram erindi frá N1 vegna umsóknar fyrirtækisins um leyfi fyrir matarvagn. Óskað er eftir því að bæjarráð taki afstöðu til þess hvort vagninn teljist leyfisskyldur samkvæmt samþykkt og gjaldskrá um götu- og torgsölu

Bæjarráð telur að starfsemi matarvagns innan lóðar falli ekki undir samþykkt og gjaldskrá um götu- og torgsölu.

Erindinu er vísað til frekari meðferðar hjá byggingafulltrúa.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Gunnlaugur Róbertsson, skipulags- og byggingafulltrúi
7. 202507059 - Framkvæmd - Áhaldahús, Álaleira 2 - Braggi, Braggahús
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til að fara í fyrirspurnarferli vegna skemmu við áhaldahús.

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna kostnaðaráætlunar.


Bæjarráð frestar ákvörðun í málinu.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu- og framkvæmda
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
8. 202603127 - Undirbúningur framkvæmdar - Silfurbraut, endurbætur
Opnun tilboða í verkið Silfurbraut - gatnagerð og lagnir.

Fjögur tilboð bárust í verkið, kostnaðaráætlun hljóðar upp á 72.913.300 kr. Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:

Rósaberg ehf. 62.295.624 kr., 85,44% af kostnaðaráætlun.
Skaftverk ehf. 103.980.950 kr., 142,61% af kostnaðaráætlun.
Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. 79.161.386 kr., 108,57% af kostnaðaráætlun.
Jökulfell ehf. 86.817.143 kr., 119,07% af kostnaðaráætlun.
Sjótækni ehf. 126.225.500 kr., 173,12% af kostnaðaráætlun.
Línuborun ehf. 108.980.950 kr., 149,47% af kostnaðaráætlun.

Tilboð Sjótækni og Línuborunar ehf. voru ekki gild þar sem undirrituð gögn bárust ekki á réttum tíma.

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna opnunar tilboða.


Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Rósaberg ehf., á grundvelli tilboðsins og útboðsgagna.
 
Gestir
Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu- og framkvæmda
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
9. 202603128 - Undirbúningur framkvæmdar - Fiskhóll, endurbætur
Opnun tilboða í verkið Fiskhóll - gatnagerð og lagnir.

Fjögur tilboð bárust í verkið, kostnaðaráætlun hljóðar upp á 62.063.000 kr. Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:

Rósaberg ehf. 45.152.539 kr., 72,75% af kostnaðaráætlun.
Rósaberg ehf. (frávik) 39.406.763 kr., 63,49% af kostnaðaráætlun.
Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. (frávik) 39.580.247 kr., 63,77% af kostnaðaráætlun.
Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. 44.571.495 kr., 71,82% af kostnaðaráætlun.
Skaftverk ehf. 46.021.750 kr., 74,15% af kostnaðaráætlun.
Jökulfell ehf. 48.640.670 kr., 78,37% af kostnaðaráætlun.
Sjótækni ehf. 83.851.250 kr., 135,11% af kostnaðaráætlun.

Frávikstilboð uppfylla ekki kröfur hönnuða um stærð á brunnum og koma því ekki til greina.

Tilboð Sjótækni ehf. var ekki gilt þar sem undirrituð gögn bárust ekki á réttum tíma.

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna opnunar tilboða.


Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Gröfuþjónustu Olgeirs ehf., á grundvelli aðaltilboðsins (ekki frávikstilboðs) og útboðsgagna.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu- og framkvæmda
10. 202604106 - Undirbúningur framkvæmdar - Útiæfingasvæði við EKRU
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til að fara í verðfyrirspurnarferli vegna útiæfingasvæðis við Ekru.

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna kostnaðaráætlunar ásamt frekari gögnum.


Bæjarráð samþykkir samhljóða að farið verði í verðfyrirspurnarferli vegna útiæfingasvæðis við Ekru.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu- og framkvæmda
11. 202605771 - Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna II
Lögð eru fram drög að svari við kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Skilafrestur er til 26. maí 2026.

Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að svara úrskurðarnefnd um upplýsingamál í samræmi við framlögð drög.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri
12. 202605803 - Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna sjómannadagsballs - Ungmennafélagið Sindri
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna sjómannadagsballs.

Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
13. 202601163 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 998 frá fundi 8. maí 2026 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 998.pdf
14. 202602141 - Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2026
Lagðar eru fram fundargerðir samtaka orkusveitarfélaga nr. 91 og 92.

Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 92.pdf
stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 91.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til baka Prenta