Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Íbúaráð Öræfum - 12

Haldinn í Hofgarði,
01.09.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Matthildur U Þorsteinsdóttir aðalmaður,
Jón Ágúst Guðmundsson formaður,
Jolanta Maria Biel varamaður,
Hjalti Þór Vignisson .
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Umsagnir
2. 202608031 - FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - opið fyrir umsóknir
Lagt er fyrir íbúaráð erindi um þátttöku sveitarfélagsins í FIFA Arena-verkefni FIFA og KSÍ, sem felur í sér uppsetningu á 40 x 20 m gervigrasvelli án fylliefnis. Hugmyndin er að staðsetja hann við Hofgarð. Óskað er eftir áliti íbúaráðs um hvar best væri að staðsetja hann við húsið. Umsóknarfrestur er til 18. september.

Íbúaráð er sammála um að best væri að staðsetja völlinn á núverandi velli, sunnan við Hofgarð. Í þessari umræðu var rætt um mögulega staðsetningu á frístundahúsi og þá væri staðurinn norðan við Hofgarð hentugri. Þannig mætti einnig mynda skjól fyrir leikvöll og mögulegan íþróttavöll.
 
Gestir
Þórgunnur Torfadóttir
Almenn mál
1. 202506053 - Endurbætur í Hofgarði
Farið yfir stöðu endurbóta við Hofgarð. Gert er ráð fyrir að skólahald færist að nýju úr Hofgarði frá Freysnesi þar sem skólinn hefur haft aðstöðu undanfarið. Undir þessum lið sköpuðust umræður um lengda viðveru í Hofgarði. Fundarmenn töldu brýnt að sú starfsemi væri í boði því margar fjölskyldur reiða sig á þá starfsemi.
 
Gestir
Þórgunnur Torfadóttir
3. 202412009 - Svínafellsheiði - útgáfa hættumats
Kynning á heimildum til uppbyggingar samkvæmt hættumati kynntar.

Hjalti sýndi teikningar af áhrifasvæði af mögulegu berghlaupi úr Svínafellsheiði. Þar var sýnt svæði sem er utan hættusvæðis auk þeirra svæða þar sem heimildir eru þrengri. Kom fram að fundað hafi verið með Ofanflóðadeild Veðurstofunnar og von sé á ítarlegri gögnum um málið á næstunni.
4. 202505053 - Málefni Gagnaveitu Hornafjarðar
Bæjarráð hefur samþykkt að selja Gagnaveitu Hornafjarðar.

Hjalti upplýsti um þá stöðu sem sala á Gagnaveitu Hornafjarðar er í. Kom fram að KPMG mun annast söluferlið sem fer af stað á næstu dögum. Fjarskiptamál eru í ólestri víða í sveitarfélaginu. Á fundinum kom fram að margir staðir eru þar sem sambandið er veikt eða ekkert. Mikilvægt sé að ná betri dekkun á 5G sendingum sem fyrst.
5. 202310027 - Uppbygging innviða á Jökulsárlóni
Hjalti gerði grein fyrir samtölum bæjarfulltrúa við ráðherra og embættismenn nú í sumar. Unnið hefur út frá því að aðskilja annars vegar innviðauppbyggingu við Jökulsárlón og hins vegar úthlutun rekstrarleyfa. Í hönd fer vinna með svæðisráði og fleiri aðilum að móta stefnu um þessi tvö verkefni.
6. 202606049 - Gjaldtaka á nýjum kafla hringvegar
Vegagerðin mun hefja gjaldtöku þann 1. september nk.

Íbúaráð Öræfa undirstrikar mikilvægi vegarins fyrir aðgengi íbúa að þjónustu á Höfn. Upphæð veggjalda sé verulega úr hófi og brýnt að afsláttarkerfið verið endurskoðað til að mæta þörfum íbúa á grannsvæði Hafnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00 

Til baka Prenta