|
|
| 1. 2610006F - Velferðarnefnd - 54 |
Fundargerð 54. fundar velferðarnefndar lögð fram.
|
| Fundargerð lögð fram tilkynningar. |
|
|
|
| 2. 2609015F - Öldungaráð - 23 |
Fundargerð 23. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar.
|
| Fundargerð samþykkt. |
|
|
|
|
|
| 3. 202402127 - Íþróttahús - hönnun |
57. fundargerð stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss lögð fram.
|
| Fundargerð lögð fram til kynningar. |
| 57. fundargerð 21. október 2026 - .pdf |
|
|
|
| 4. 202509060 - Uppbygging miðbæjar á Höfn |
Lagt fram erindi frá Landsbyggð ehf. um ósk framlengingu á vilyrði um úthlutun lóða sem voru hluti af viljayfirlýsingu frá október 2025 fram yfir íbúakosningu um samning um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að framlengja vilyrði um úthlutun lóða fram að 31. desember 2026. |
|
|
|
| 5. 202610098 - Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs.2026 |
Heilbrigðiseftirlit Austurlands boðar til aðalfundar á Teams fimmtudaginn 12. nóvember kl. 14:00. Aðildarfélög skulu senda HAUST upplýsingar um hvaða fulltrúar sitji aðalfund og fari með atkvæði fyrir þeirra hönd sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.
|
| Bæjarráð samþykkir að Eyrún Fríðar Árnadóttir verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum og fari með atkvæði þess. |
|
|
|
| 6. 202505053 - Málefni Gagnaveitu Hornafjarðar |
KPMG hefur tekið saman stutt söluyfirlit fyrir Gagnaveitu Hornafjarðar auk þess að stilla upp tilboðsformi og skilmálabréfi.
|
Bæjarráð samþykkir að hefja söluferli á Gagnaveitu Hornafjarðar samkvæmt framlögðum gögnum að því breyttu að tilboðsfrestur skuli vera til 25. nóvember. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 7. 202606032 - Undirbúningur framkvæmdar - Jökulfellsvöllur Endurnýjun |
Jökulfellsvöllur - jarðvinna og yfirborðsfrágangur, opnun tilboða. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
|
Lagðar eru fram niðurstöður útboðs vegna endurnýjun á Jökulfellsvelli. Bæjarráð hafði áður, með samþykki í tölvupósti, fallist á að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda, Rósaberg ehf, á grundvelli fyrirliggjandi niðurstaðna útboðsins. Bæjarráð staðfestir fyrri afstöðu sína og samþykkir að gengið verði til samninga við Rósaberg ehf á grundvelli tilboðs þess, að fjárhæð 79.052.181 kr. eða í 77,11% af kostnaðaráætlun, í samræmi við útboðsgögn og gildandi reglur.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 8. 202606032 - Undirbúningur framkvæmdar - Sindravellir Endurnýjun |
Lögð fram tillaga um nýtingu á grasi af Jökulfellsvelli í tengslujm við endurbætur á vellinum.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fyrsti kostur sé að selja grasið sé kaupandi fyrir því en að öðrum kosti verði það nýtt við götur og eignir sveitarfélagsins. Deildarstjóra þjónustu og framkvæmda falið að fylgja málinu eftir.
|
|
|
|
| 9. 202510123 - Snjómokstur - aðkeypt þjónusta |
Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram er varðar útvistun á snjómokstri innan Hafnar.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða að unnið verði að tímabundnum viðauka við núverandi samning um snjómokstur. Að reynslutímabili loknu verði kostnaður og þjónustugæði borin saman við þriggja ára reynslu áhaldahúss, ásamt áætluðum fjárfestingar- og rekstrarkostnaði við eigin tæki. Þær niðurstöður liggja til grundvallar fyrir ákvörðun um fyrirkomulag snjómoksturs til lengri tíma.
|
|
|
|
| 10. 202607015 - Rekstrarfyrirkomulag Áhaldahúss og Hornafjarðarhafnar |
Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkævmda lagt fram um útvistun á götusópun í sveitarfélaginu.
|
Bæjarráð heimilar umhverfis- og framkvæmdasviði að hefja verðfyrirspurnarferli vegna götusópunar á Höfn, skv. viðmiðum sem koma fram í minnisblaði. Niðurstöður ásamt samanburði á hagkvæmni verði lagðar fyrir bæjarráð áður en ákvörðun um samningsgerð verður tekin.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 11. 202610099 - Aðgengi, umhverfi og bílastæði við Íshúsið |
Lagt fram erindi frá Íshúsinu varðandi aðgengi að veitingastaðnum og bílastæðum tengdum húsinu.
|
Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Fyrirhuguð er kosning um áform um uppbyggingu á svæðinu sem um ræðir. Í samningi þar um er gert ráð fyrir samráði við hagaðila um framkvæmdir og tímasetningar. Í þeirri vinnu er mikilvægt að huga vel að aðgengi að núverandi og tilvonandi rekstraraðilum á svæðinu. Málið verður tekið fyrir í framhaldi af niðurstöðu íbúakosningar.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 12. 202601013 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026 |
Athugasemdir hafa borist frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu (URN) við samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026 og hafa drögin verið uppfærð í samræmi við þær. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að farin verði einföld leið varðandi heimajarðgerð, án sérstaks skráningar- eða úttektarkerfis, og samþykkir að fylgja tillögu ráðuneytisins um söfnun heimilisúrgangs frá rekstraraðilum, þannig að rekstraraðilar geti áfram samið beint við þjónustuaðila um söfnun. Endurskoðuð samþykkt er nú lögð fyrir bæjarráð til umfjöllunar.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar og vísar samþyktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
|
|
|
|
| 13. 202609075 - Endurskoðun á fimleikaakstri |
Lögð fram drög að viðauka við samning um fimleikaakstur lögð fyrir bæjarráð.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög.
|
|
|
|
| 14. 202608067 - Öldrunarþjónusta í Öræfum |
Lögð eru fram drög að verktakasamningi vegna fyrirhugaðs félags- og virknistarfs og mögulegrar útfærslu á veitingu stuðnings- og akstursþjónustu fyrir eldri borgara í Öræfum. Um er að ræða tilraunaverkefni frá 1. nóvember til 31. desember 2026, þar sem byrjað verður á 4 klst. vikulegri þjónustu í Hofgarði með möguleika á framlengingu til eins árs.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning. |
|
|
|
| 15. 202508028 - Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir |
Lagt er fram minnisblað og drög að endurskoðun á reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrir sitt leiti framlagðar breytingatillögur á reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir til samræmis við lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög nr. 38/2018 og lög nr. 88/2021. Málinu er vísað til bæjarstjórnar til samþykktar.
|
|
|
|
| 16. 202610073 - Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna |
Sviðsstjóri velferðarsviðs gerði grein fyrir tveimur styrkumsóknum Sveitarfélagsins Hornafjarðar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna nýauglýstra styrkja til sveitarfélaga í þágu farsældar barna. Annars vegar er um að ræða heildstætt forvarnar- og innleiðingarverkefni undir vinnuheitinu "Örugg saman í Hornafirði". Hins vegar kynnti sviðsstjóri sérhæft virkni- verkefni undir vinnuheitinu "Anime-Hornið". Verkefnið er ætlað stúlkum í 8.-10. bekk og mögulega FAS sem standa utan hefðbundins skipulags tómstunda- og íþróttastarfs.
|
| Bæjarráð fagnar framkomnum hugmyndum um verkefni og samþykkir samhljóða að veita umbeðnum framlögum til verkefnanna ef til þeirra kemur. |
|
|
|
| 17. 202502025 - Gott Bakland - Fræðsla fyrir aðstandendur einstaklinga með geðrænar áskoranir |
Á fundi bæjarráðs nr. 1232 óskaði bæjarráð eftir fjárhagslegu mati frá fjármálastjóra á því að styrkja verkefni sem Gott bakland stendur fyrir um 1.000.000 kr.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita styrkinn með tilfærslu á fjárhagsheimildum og vísar því til viðaukagerðar. |
|
|
|
| 18. 202611014 - Hjúkrunarheimilið á Höfn - uppgjör framkvæmdakostnaðar |
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) hefur lokið yfirferð á uppgjöri vegna framkvæmda við Hjúkrunarheimilið á Höfn. Heildaráfallinn kostnaður nemur 2.360,7 m.kr. og hlutur Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 20,2%, nemur 476,9 m.kr. Eftir frádrátt áður útgefinna reikninga eru eftirstöðvar sveitarfélagsins 29.040.144 kr. Upphaflegur reikningur að fjárhæð 70.378.614 kr. hefur verið kreditfærður vegna athugasemda frá sveitarfélaginu og nýr reikningur að fjárhæð 29.040.144 kr. gefinn út.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|