Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 13

Haldinn Hrollaugsstöðum,
09.09.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Ari Hannesson aðalmaður,
Bjarni Haukur Bjarnason formaður,
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður,
Hjalti Þór Vignisson .
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202609006 - Endurbætur á Hrollaugsstöðum - hönnun
Unnið er að hönnun á endurbótum á Hrollauggstöðum. Á fundinum var kynnt hugmynd að útfærslu á anddyri, geymslu og salernum.

Íbúarráð lýsir yfir ánægju með framlögð drög og hvetur til að farið verði í hönnun á endurbótum á þessum forsendum. Íbúaráð benti á ýmislegt sem þarf að gæta að, t.d. útleigu á húsinu til utanaðkomandi aðila og umgengni þeirra. Einnig var rætt um öryggis- og eldvarnarmál.
2. 201205026 - Viðhald girðinga meðfram vegum í sveitarf
Víða í sveitarfélaginu er ennþá ógirt meðfram þjóðvegi með tilheyrandi hættu fyrir vegfarendur og búfénað.

Hjalti gerði grein fyrir samtölum við Vegagerðina. Fyrirhuguð er heimsókn svæðisstjóra Vegagerðarinnar þar sem þetta mál er eitt af þeim sem eru á dagskrá. Íbúarráð leggur mikla áherslu á að þessi mál verði tekin föstum tökum og skýr áætlun sett um uppbyggingu girðinga í sveitarfélaginu.
3. 201609029 - Réttir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málefni rétta í sveitarfélaginu hafa ekki fengið athygli lengi. Ástand sumra þeirra er orðið lélegt.

Íbúarráð óskar eftir að málefni rétta og fjallskila verði tekin til skoðunar á vettvangi sveitarfélagsins.
4. 202609005 - Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Með nýjum vegi þar veggjald er tekið hafa vaknað spurningar um reglur er varðar stuðning við akstur foreldra með börn í leikskóla.

Íbúarráð óskar eftir að reglurnar verði endurskoðaðar með tillti til verðlagsþróunar og veggjalda.
5. 202605858 - Ástand afleggjara
Afleggjarar að bæjum og útvistarsvæðum sem ekki eru lagðir bundnu slitlagi eru margir hverjir í óásættanlegu ásigkomulagi.

Hjalti gerði grein fyrir samtölum við Vegagerðina og að þetta sé eitt af þeim málum sem verður rætt á næsta fundi með svæðisstjóra Vegagerðarinnar. Einnig hefur verið rætt við Landgræðsluna þar sem það á við. Einnig var bent á að huga verði að brúm á þessum vegum.
6. 202609035 - Vetrarþjónusta vegagerðarinnar
Komið hefur fram að vetrarþjónusta Vegagerðarinnar samkvæmt auglýsingu eigi að hefjast kl. 9.30 á virkum dögum nema á þriðjudögum þegar enginn þjónusta er áformuð.

Undanfarin ár hafa snjóruðningstæki verið farin af stað mun fyrr. Íbúarráð telur mikilvægt að þetta verði leiðrétt og þjónusta fari af stað mun fyrr en auglýst er. Einnig þarf að bæta hálkuvarnir verulega.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 

Til baka Prenta