Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 92

Haldinn í ráðhúsi,
28.10.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Gunnar Ásgeirsson formaður,
Ágústa Margrét Arnardóttir varaformaður,
Elías Tjörvi Halldórsson aðalmaður,
Alexander Vigfússon aðalmaður,
Valur Pálsson áheyrnarfulltrúi,
Aleksandra Wieslawa Ksepko varamaður,
Sigríður G Björgvinsdóttir .
Fundargerð ritaði: Sigríður G. Björgvinsdóttir, Staðgengill forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar


Dagskrá: 
Fundargerðir til kynningar
1. 202602128 - Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs lagðar fram til fundar.

Lagt fram til kynningar.
VJP_162.fundursvæðisráðssuðursvæðis-fundargerð.pdf
VJP_Svæðisstjórnfundargerð227.pdf
2. 202509069 - Skaftfellingur
Fundagerðir ritnefndar Skaftfellings lagðar fram til kynningar.

Nefndin hvetur áhugasama um áskrift að útgáfunni að skrá sig hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
3. 202602117 - Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
Fundargerðir Markaðsstofu Suðurlands lagðar fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.
2.-stjornarfundur-mss_14.-september-2026_fundargerd.pdf
Almenn mál
4. 202512055 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Uppfærðar úthlutunarreglur lagðar fyrir til samþykkis.

Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir framlagðar úthlutunarreglur og vísar þeim til bæjarráðs og bæjarstjórnar til samþykkis.

Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur bæjarstórn til þess að tryggja framtíðarfjármögnun sjóðsins í komandi fjárhagsáætlunargerð og leggur til að veitt verði 10 milljónum í sjóðinn strax á næsta ári þar sem að staða sjóðsins er fremur lág. Einnig að skoðað verði hvort ekki sé hægt að veita fjármunum í sjóðinn árlega í kjölfarið til að tryggja stöðugleika sjóðsins.
5. 202610085 - Verkefnastyrkir 2027
Nefndin ræðir drög að auglýsingu fyrir verkefnastyrki sveitarfélagsins og hvort ákveða eigi áherslur ársins samkvæmt heimildum úthlutunarreglna sjóðsins.

Nefndin leggur ekki til sérstök áhersluverkefni og hvetur félagasamtök og einstaklinga til þess að nýta sér styrkina í fjölbreytt verkefni.
6. 202602126 - Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Starfsmaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar kynnir starf stofnunarinnar og minnisblað forstöðumanns lagt fyrir.

Auglýst er eftir sérfræðingi á listasafn Svavars Guðnasonar, umsóknarfrestur er 5. nóvember og eru öll áhugasöm hvött til að sækja um. https://www.hornafjordur.is/laus-storf/serfraedingur-a-safn

Næstu viðburðir Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar:
15. nóvember - Rithöfundakvöld
28. nóvember - Aðventuhátíð sveitarfélagsins


Nefndin þakkar kynninguna og óskar eftir upplýsingum um stöðu og framhald þeirra verkefna sem féllu undir starf verkefnastjóra markaðsmála og viðburða.

Fulltrúi Kex framboðs harmar þá ákvörðun bæjarráðs að starf verkefnastjóra markaðsmála og viðburða verði lagt niður. Ekki var komin mikil reynsla á starfið en ávinningur þess var ótvíræður fyrir samfélagið og uppbyggingu starfsins í Gömlubúð.
Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið að halda vel á spöðunum þegar kemur að utanumhaldi um viðburði og markaðsmál og því er þetta verulegt skref afturábak.
Starf Menningarmiðstöðvarinnar hefur verið að eflast töluvert undanfarin ár og hefur fulltrúi Kex áhyggjur af því að þessi ákvörðun auki verkefnaálag og dragi úr starfi stofnunarinnar.
7. 202610093 - Reglur um farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Á fundi bæjarráðs nr. 1237 fól bæjarráð atvinnu- og menningarmálanefnd að endurskoða reglur um farandsölu.



Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmanni að vinna að uppfærslu reglna um farandsölu í samræmi við umræður á fundinum.
Reglur-um-farandsolu-2002.pdf
8. 202608055 - Áætlun um refaveiðar
Minnisblað umhverfisfulltrúa varðandi gjaldskrá lagt fram

Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að greiðslur til samningsbundinna veiðimanna hækki upp í 15.000 kr. fyrir ref. Halda verði fyrir mink óbreyttu. Eins leggur nefndin til að veiðimenn skili inn aksturs- og tímaskýrslu með veiðiskýrslu til þess að hægt sé að meta betur raunkostnað.

Valur Pálsson vék af fundi undir þessum lið.
9. 202610095 - 130 ára afmæli Hafnar 2027
Til umræðu hefur komið hvort stofna eigi afmælishóp vegna 130 ára afmælis Hafnar á næsta ári.

Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að afmælisárinu verði gerð góð skil á Humarhátíð og að viðburðir og möguleg útgáfa efnis verði í höndum humarhátíðarnefndar. Mikilvægt er að Humarhátíðarnefnd fái til þess aukinn stuðning og fjármagn.
10. 202610104 - Fjallskil
Lagt fram minnisblað um fjallskil og ágang búfjár í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir að taka fjallskilasamþykkt til endurskoðunar og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta